Áðan las ég þessa grein sem gerði mig bara alveg rosalega reiða:
http://innblastur.is/read/2014/03/20/laekningin-vid-thunglyndi/?fb_action_ids=10203342171818122&fb_action_types=og.likes&fb_source=other_multiline&action_object_map=%5B492590677530498%5D&action_type_map=%5B%22og.likes%22%5D&action_ref_map=%5B%5D
Í þessari grein segir;
"Þunglyndi er að mínu mati ótrúlega misskilið fyrirbæri. Af mörgum er þunglyndi talið vera sjúkdómur. Það er ekki rétt. Að minnsta kosti ekki í þeirri merkingu að þunglyndi sé eitthvað sem við fáum og ráðum ekki við, óheppin við. Þunglyndi er einvörðungu huglægt og kemur til af því að viðkomandi einstaklingi líki ekkert sérstaklega vel við sjálfan sig."
Ég hef lengi velt fyrir mér hvort ég eigi að opna mig um mína sjúkdóma, og eftir að hafa lesið þessa grein þá langar mig eiginlega bara að svara þessu.
Ég er þunglynd og með kvíðaröskun.
Síðan áður en ég man eftir mér hef ég barist við þunglyndi. Vissulega hef ég lent í ýmsum erfiðleikum í lífinu, ég var lögð í einelti, já ég er hætt að láta eins og það hafi ekki gerst.. Ég var lögð í mikið einelti í grunnskóla og ég átti enga vini. Ég grét í fanginu á mömmu minni nánast alla daga og var vitanlega alveg rosalega þunglynd. En það var löngu komið upp á yfirborðið áður en ég lenti í neinu, áður en slæmar lífsreynslur höfðu mótað lífið mitt. Ég man ekki einu sinni hvenær ég byrjaði að taka þunglyndislyf. Ég hef örsjaldan náð að vera án þeirra og það hefur alltaf varið stutt. Þegar ég var ung var ég rosalega geðill, skapvond og erfitt að umgangast mig. Foreldrar mínir fóru með mig stanslaust til læknis, leitandi að svörum, og þá var ég svona rosalega þunglynd sem barn. Ég var ekki nema 12 ára gömul þegar ég var farin að íhuga að taka eigið líf.. Ég hefði sjálfsagt aldrei þorað að framkvæma það, en ég hugsaði mikið um það, hvort einhverjum (fyrir utan nánustu fjölskyldu) yrði sama hvort ég myndi bara drepa mig. Að vísu fékk ég þessar hugsanir staðfestar frá einum aðila í sms-i, sem sagði að heimurinn væri mikið betri án mín og að ég ætti bara að drepa mig.
Þetta er ekki það sem mótaði þunglyndið mitt. Hver einasti dagur er barátta, og hefur alltaf verið í mínu lífi, alveg sama hvað er að gerast. Til dæmis er ég í dag nýgift og lífið ætti að vera dans á rósum en það er það ekki. Sumir dagar eru bara alveg rosalega erfiðir. Suma daga get ég ekki haldið inni tárunum, og græt úr mér augun, ekki útaf því ég hata sjálfa mig svo mikið, ekki út af því að lífið er svo erfitt, heldur er engin ástæða fyrir því. ÞAÐ er þunglyndi, oftar en ekki líður manni hræðilega en maður hefur enga hugmynd af hverju, sem í mínu tilfelli lætur mér líða enn verr því ég verð svo pirruð þegar ég græt út af engu.
Ég reyndi að hætta að taka lyfin mín fyrir stuttu síðan. Ég varð brjáluð í skapinu, réð ekkert við sjálfa mig, allt var ómögulegt, hvort sem það var ég, maðurinn minn eða jafnvel dýrin mín, svo grét ég úr mér augun, bara því ég þoldi ekki að Binni var að sjá mig í þessu ástandi.
,,Þunglyndi er að vera brotin/nn. Lækningin við þunglyndi, og já hún er svo sannarlega til, því um það er ég lifandi vitni, er sú að horfast í augu við sjálfan sig og sjá að þú ert ekki svo hræðilegur eftir allt saman. Það er að fara í gegnum það sem þú hefur upplifað um ævina og uppgötva að skilaboðin sem þú fékkst voru röng, að þú ert fullkomin/nn nákvæmlega eins og þú ert. Þú þarft ekki á neinu að halda til að vera það. Lækningin felst í því að taka eftir röddinni sem segir alla þessa ljótu, leiðinlegu hluti og skipta því sem hún segir út fyrir jákvæða hluti. Að velja að segja við sig: “Ég er fullkomin/nn, ég er frábær eins og ég er, ég elska þig eins og þú ert.” Lækningin er að horfast í augu við þig í speglinum og vita að þú ert nóg."
Ég er búin að hitta sálfræðinga og geðlækna allt mitt líf. Allir hafa gefið mér það verkefni að fara heim og horfa í spegilinn og hrósa sjálfri mér fyrir hitt og þetta. Jújú það gerir alveg gagn en nei það er ekki lækning.
Ég er ekki þunglynd af því að ég hata sjálfa mig. Ég er ekki þunglynd því ég var lögð í einelti. Ég er ekki þunglynd því ég hef lent í slæmum hlutum í lífinu.
Ég er þunglynd því ég fæddist svoleiðis. Ég er þunglynd og ég get ekkert að því gert. Það eina sem ég get gert er að taka lyfin mín og læra að lifa með þessum sjúkdómi. Svo er ótrúlegt hvað góð hreyfing gerir mikið fyrir þunglyndi, setur náttúrulega gleðiefnið í heilanum á okkur af stað og er besta lyfið við þessum leiðinlega sjúkdómi.
Mér finnst þetta stór orð sem þessi ágæta stelpa er að henda fram og ég held hún mætti bara sveimérþá skammast sín fyrir þau. Þetta er mögulega svarið við almennri vanlíðan, en þetta er ekki svarið við þunglyndi. Hver og einn tekst á við þunglyndi á sinn hátt, sumir ná tökum á því aðrir ekki. Ég er því miður ein af þeim sem þarf alltaf að berjast við þetta en ég er búin að sætta mig við það, og þar með er hálf barátta sigruð. Hinn helminginn af baráttunni mun ég alltaf berjast við.
Það er svo mikilvægt að opna fyrir þessa umræðu, og mikilvægi þess að fá hjálp, ég vona að enginn sem er að upplifa þunglyndi, lesi þessa grein og haldi að þetta sé í hausnum á þeim og fari fyrir vikið ekki að fá hjálp. Þetta er alvöru sjúkdómur og hann er ekkert grín.
Monday, March 24, 2014
Tuesday, February 25, 2014
Nautnaseggur
Einusinni ætlaði ég að vera ofboðslega dugleg að borða öfgakennt hollt og setja endalausar uppskriftir og þetta átti að vera hollt blogg, EN við hjónin erum alltof miklir nautnaseggir til að geta borðað endalausar kjúklingabringur og boost.
Núna höfum við ákveðið að borða bara venjulegan mat, í hollari kantinum samt.
Við förum í ræktina flesta daga, eftir vinnu þannig að þá höfum við bara léttann mat.
Þessa 2-3 daga í viku sem ég fæ að elda góðann kvöldmat, langar mig líka að hafa eitthvað gott í matinn. Ætla að reyna að gera a.m.k einu sinni í viku að prufa eitthvað nýtt og það heppnast vel, þá mun ég setja inn uppskriftir hér og þar.
Í gærkvöldi skannaði ég yfir öll matarblogg og allar matreiðslubækurnar mínar í leit að einhverri gómsætri uppskrift, og ég fann uppskrift á www.ljufmeti.com sem mér leist vel á og ég ætla að deila henni með ykkur.

Setjið fyllingu í skelina og bakið við 200°c í 30 mín, takið út, setjið mozzarella ostinn yfir og setjið aftur inn í ofn 10 mínútur.

Gómsæt sweet chili kjúklingabaka
Botn:
5 dl hveiti
250 gr kalt smjör
1 tsk salt
3-4 msk kalt vatn
Fylling:
3 kjúklingabringur
5 dl sýrður rjómi (alveg 2 dósir)
1/2 - 1 paprika
Sveppir
2 Skarlottulaukar
1 dl sweet chili sósa
salt og pipar
2-3 msk maizena mjöl
mozarella ostur, rifinn
Aðferð:
Botn: Skerið smjörið í teninga og hrærið öllu saman með höndunum þangað til smjörið hefur blandast alveg saman við hveitið. Þrýstið deiginu í formið, bæði í botninn og kantana og setjið í ísskáp í smá stund, allavega á meðan fyllingin er elduð.
Fylling:
Kjúklingurinn er skorinn og steiktur. Laukurinn, paprikan og sveppirnir eru skorið smátt niður og bætt við kjúklinginn. Hrærið sýrðum rjóma og chili sósunni saman við og hitað að suðu. Látið sjóða við vægan hita í 10-15 mínútur og saltið eftir þörfum
Maizena er bætt við til að þykkja.

Setjið fyllingu í skelina og bakið við 200°c í 30 mín, takið út, setjið mozzarella ostinn yfir og setjið aftur inn í ofn 10 mínútur.
Ég skar líka niður kirsuberjatómata í sneiðar og lagði ofaná fyllinguna, sem mér fannst mjög gott. Það er líka gott að forbaka botninn í svona 10 mínútur áðuren fyllingin er sett í.
Klikkaði alveg á að taka mynd af minni böku, þannig að ég stal myndunum af ljufmeti.com
Hérna er upprunalega uppskriftin:
http://ljufmeti.com/2012/12/16/kjuklingabaka-med-sweet-chili/
http://ljufmeti.com/2012/12/16/kjuklingabaka-med-sweet-chili/
Monday, September 10, 2012
Mangó-karrý réttur
Eftir nokkra mánaða fjarveru langaði mig að henda inn einni góðri uppskrift.
Ég var orðin orðin svolítið þreytt á sama mataræðinu, sem er náttúrulega því ég nenni aldrei að prufa neitt nýtt, en ég ákvað að breyta til í kvöld og henda einhverju í pott og vona að það kæmi eitthvað gott út úr því. Gerði svona óógeðslega góðan kjúklingarétt.
Mangó-karrý réttur
1 dós Kókosmjólk
1-2 msk mango chutney
1 ½ msk tómatpúrra
Kjötsoð (1 teningur + 1 dl soðið vatn)
Salt og pipar
1-2 msk karrý
Hvítlaukur
1 kjúklingabringa
Grænmæti að eigin vali - ég set sveppi, papriku, og lauk - væri örugglega ekki verra að henda brokkolí líka í pottinn.
Þetta er allt látið malla á lágum hita í 10-15 mín, kjúklingurinn og grænmetið steikt á pönnu og allt hent saman í einn graut.
Borið fram með hrísgrjónum og svo er gott að setja teskeið af grískri jógúrt eða sýrðum rjóma með á diskinn.
Bon appetít !
Wednesday, April 11, 2012
Vor í lofti
Jæja, páskarnir búnir og alvaran tekur við!
11 skóladagar eftir af önninni, síðustu tímaprófin eru á næstunni og áðuren ég veit af verð ég komin í sumarfrí.
Næstu daga verður hver dagur tekinn með trompi, ekkert annað en metnaður áður en sumarfríið tekur við.
Nenni eiginlega ekki að hafa bloggið lengra en ætla að henda inn kvöldmat dagsins
Smá kjúklingur, smá hrísgrjón, FULLT af brokkolí, papriku og sveppum
og Mango Chutney + grísk jógúrt
Einfalt og delísjös, og svo er gaman að flippa með einhver skemmtileg og góð krydd
Einfalt og delísjös, og svo er gaman að flippa með einhver skemmtileg og góð krydd
ATH að passa sig á kryddblöndum, annað hvort að fara varlega í að nota þær, eða bara sleppa því að kaupa þær, því þær eru oft meira og minna salt, og salt er ekki gott í óhófi :)
L8ter y'all
Tuesday, March 27, 2012
Reykingaleysi og metnaður!
Ég hugsa að það sé kominn tími á að láta heyra í mér, eftir rúmlega mánaða fjarveru frá bloggheiminum.
Lífið gengur bæði upp og niður, eins og gengur og gerist, mataræðið gengur misvel, sumar vikur eru alveg frábærar, aðrar eru bara ömurlegar.
Núna eru 8 dagar síðan við hjónin lögðum sígarettuna á hilluna. Ég hálf vorkenni þeim sem þurftu að umgangast mig í síðustu viku, því ég hef sjaldan verið jafn þurr á manninn, brosti varla og fannst ekkert fyndið, ég vildi bara sofa daginn frá mér! En núna er ég komin í gírinn, löngunin í nikótínið horfin, þó rútínan og venjan sé alltaf jafn erfið að losa sig við, hugsanlega miklu erfiðari heldur en fíknin sjálf.
Undanfarnar vikur, og mánuði hef ég leyft mér að liggja í vorkunn og finna til í líkamanum og notaði það sem afsökun til að fara ekki út að hreyfa mig. Þó að mataræðið sé rosalega stór partur í þessu, verður maður að hreyfa sig líka. Og svo núna í morgun þegar ég ákvað loksins að taka daginn snemma og fara að labba þá þurftum við að stytta göngutúrinn um helming því ég fór strax að finna til í skrokknum. Augljóslega er ég rosalega vonsvikin við sjálfa mig að hafa leyft þessu að gerast, og þurfa nánast að byrja á byrjun, að liðka mig til.
En það skal gerast og nú verður labbað og rífa í járnin!! Ekkert nema harka á næstunni!
Svo styttist í páskafrí og þá verður brunað norður í faðm fjölskyldunnar, notalegheit í 10 daga og svo lokaprófsharkan. Tíminn líður svo fáránlega hratt, ég get svarið það að jólin voru í gær.

Árshátíð Reiknistofu Bankanna 2011
og árshátíð Reiknistofu Bankanna, 2012
Friday, February 10, 2012
bloggíblogg
Ætli það sé ekki kominn tími á nokkur orð frá mér. Þessi vika er búin að vera alveg ótrúlega léleg. Er búin að liggja í flensuskít síðan á mánudaginn og í öllum aumingjaskapnum þráði ég ekkert heitar en óhollustu, og lét það eftir mér. Sem var augljóslega ekki góð hugmynd og núna er detox hjá okkur hjónakornunum.
Það hefur verið meira en að segja það að komast á rétta braut eftir jól og utanlandsferð, og gengur í bylgjum. En núna erum við ákveðnari en nokkurntíman og hvetjum hvort annað áfram. Nú verður ekkert sukk, nema í mesta lagi jarðaber dýfð í suðusúkkulaði á laugardögum, og ekki er það verra en hinn skíturinn.
Það virðist ekki vekja löngun í frekari óhollustu og vekur ekki matarfíkilinn heldur!
Það hafa margir sagt við mig, kommon fáðu þér eitt súkkulaði, kommon, fáðu þér kökusneið!
En það er einmitt málið, ég verð að vera svona rosalega ströng við sjálfa mig, ef ég leyfi mér smá, þá missi ég tökin. Binni orðaði þetta mikið betur á sínu bloggi enda miklu betri penni en ég!
En kvöldmatur vikunnar:
Kjúklingur, grænmeti og peanut satay sósa
okei ekki mjög girnilegt á myndinni en SVO GOTT samt!
Er núna að reyna að finna góða uppskrift af þessari sósu því ég er að svindla og borða hana tilbúna og krukku og krukkusósur innihalda maís, því miður!
Er núna að reyna að finna góða uppskrift af þessari sósu því ég er að svindla og borða hana tilbúna og krukku og krukkusósur innihalda maís, því miður!
Tuesday, January 24, 2012
Hvatning og skipulag.
Ég ætla að setja smá blogg um lífstílsbreytinguna.
Eftir jólafríið og utanlandsferðina líður mér pínu eins og ég sé að byrja upp á nýtt. Við erum bæði búin að eiga smá erfitt með að halda okkur við mataræðið og misstum okkur aðeins um helgina.
En núna er ekkert nema harkan og nú skal ég komast á skrið eftir jólafríið og sukkferðina!
Þetta snýst allt um skipulag. Ég skipulegg alla matartíma í kringum skóla ásamt hreyfingu.
Ég náði að minnka götin á stundartöflunni minni og er þar að leiðandi ekki í skólanum fyrr en kl 10 alla daga nema þriðjudaga, en þá er ég kl 11.25.
En fyrst Binni er á morgunvakt er ég búin að vakna með honum kl 7 í dag og í gær og taka góða æfingu áður en ég þarf að mæta í skólann. Ég vil ekki keyra mig of mikið út þannig að ég ákvað í byrjun vikunnar að ég myndi taka æfingar 3-4x í þessari viku, mánudag, þriðjudag, frí á miðvikudag, fimmtudag og föstudag ef ég hef orku í svo mikið. Geri mismikið eftir líkamlegu ástandi. Ég t.d gat verið endalaust að í gærmorgun enda hafði ég ekki hreyft mig síðan fyrir jól, en í dag finn ég fyrir æfingum gærdagsins og gat gert aðeins minna.
Svo er að sjálfsögðu lykilatriði að teygja mjög vel á eftir æfingar, annars yrði ég handónýt og gæti ekkert daginn eftir.
Svo skipulegg ég matartímana. Einsog kannski einhver veit, sem hefur gert þetta, þá er ótrúlega strembið að setja saman skipulagða matartíma með vinnu eða skóla. Ég borða alltaf á 3 tíma fresti og ef ekkert annað er í boði tek ég bara með mér ávöxt eða eitthvað í seinni tímana eftir hádegi. Ég fæ mér stundum á kvöldin en ekkert endilega, en það er algjör klisja að maður eigi ekki að borða eftir ákveðinn tíma á kvöldin.
Svo fyrir þá sem eru að byrja í einhverju svona, eða að hugsa um það er mjög mikilvægt að setja ekki of há markmið, annars er líklegra að þið sjáið aldrei fyrir endann á markmiðinu og þið haldið að þið munið aldrei ná því. Svo er mjög gott að verðlauna sig eftir t.d ákveðið mörg kíló eða annað sem er verið að reyna að takast á við, ákveðið háar einkunnir osfrv.
Ég setti fyrsta markmiðið mitt við 10 kg þótt ég vissi alveg að ég þyrfti að missa meira. En samt sem áður var ég himinlifandi að missa þessi 10 kg og þá bætti ég 5 kg við markmiðið. Svo náði ég því markmiði og bætti öðrum 5 kg við, sem ég hef reyndar ekki náð ennþá, er ennþá föst í 18 kg tapinu. Og eftir hvert einasta mark voru verðlaun við endann, þótt ég reyndar verðlaunaði mig bara með því að fá mér fínar neglur en ég á inni hjá mér nýtt tattoo, þegar ég á pening fyrir svoleiðis, því það áttu að vera verðlaunin fyrir að missa 15 kg.
Ég fann þennann líka frábæra pistil áðan sem er mikið til í og gott að lesa - sama hvort maður er að reyna að grennast eða ná öðrum markmiðum, þá eru mjög góðir punktar þarna, fannst mér :)
http://sportelitan.is/read/2012/01/24/motivate-yourself-
En ég er hætt þarsem þetta er orðið kannski of langt hjá mér.
alltílagibæ.

Það er líka mjög mikilvægt að fá hvatningu, ég veit ekki hvort ég hefði getað þetta án Binna og peppinu sem ég fæ frá honum, en hef fengið mikla hvatningu frá vinum og ættingjum og það gerir ótrúlega mikið fyrir mann!
Ég fann þennann líka frábæra pistil áðan sem er mikið til í og gott að lesa - sama hvort maður er að reyna að grennast eða ná öðrum markmiðum, þá eru mjög góðir punktar þarna, fannst mér :)
http://sportelitan.is/read/2012/01/24/motivate-yourself-
En ég er hætt þarsem þetta er orðið kannski of langt hjá mér.
alltílagibæ.
Subscribe to:
Posts (Atom)